Sonurinn er laus úr einangrun og mun bera við neyðarvörn

Maður á fertugsaldri sem var handtekinn um síðustu helgi vegna gruns um manndráp í Breiðholti hefur verið látinn laus úr einangrun. Hann ber við neyðarvörn.Faðir mannsins sem er á sextugsaldri og var sömuleiðis handtekinn fyrir viku var látinn laus úr haldi í gær.Til átaka kom á milli feðganna og tveggja manna í Breiðholti aðfaranótt sunnudags. Þar beitti sonurinn hnífi og lést annar þeirra sem varð fyrir stungunum. Hinn særðist talsvert, en er ekki í lífshættu. VORU Á ÁLFINUM FYRR UM KVÖLDIÐ Samkvæmt heimildum fréttastofu náðist atburðarásin á eftirlitsmyndavél og er meðal rannsóknargagna lögreglu. Heimildir fréttastofu herma að allir mennirnir hafi áður en til átakanna kom, verið á sportbarnum Álfinum, sem er í Hólagarði í Breiðholti. Þar hafi þeir sést eiga samskipti.Gæsluvarðhaldskr
Sonurinn er laus úr einangrun og mun bera við neyðarvörn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar