Arsenal er nú með sex stiga forskot í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta eftir 0-1 sigur á nýliðum Hull. Hull reyndust þó erfiður ljár í þúfu og markalaust var í hálfleik.Martin Odegaard kom Arsenal yfir eftir 72 mínútna leik. Noni Madueke skar inn í teiginn og náði föstu vinstri fótar skoti. Tzolakis í marki Hull varði boltann út í teiginn og Odegaard var eins og gammur í teignum er hann fylgdi eftir skotinu.Manchester City er í öðru sæti með 21 stig og á tækifæri á að minnka bilið þegar Nottingham Forest mætir til Manchester. Leikurinn hefst klukkan 17:30. LEEDS HÖRKUÐU ÚT SIGUR Leeds vann 1-0 seiglusigur gegn Tottenham fyrr í dag. Noah Okafor skoraði sigurmarkið á 79. mínútu eftir að Harry Wilson náði að koma boltanum á hann. Jared Bogle, leikmaður Leeds, slapp við rautt spjald eftir