Tugir drepnir í loftárásum á Jemen

Að minnsta kosti 22 voru drepnir í loftárás Sádi-Araba á Sanaa-hérað í Jemen dag. Frá þessu greinir Saba, fjölmiðill Húta í Jemen. Flest þeirra sem létust voru konur og börn. 30 hið minnsta særðust í árásinni.Sameinuðu þjóðirnar segja fleiri en 1600 hafa verið drepna og rúmlega 300 þúsund á flótta síðan átök hófust á ný í landinu. Sádar hafa ekki tjáð sig um árásina.Í gær voru 30 drepnir í loftárás á markað í Taiz-héraði í Jemen. Hútar sögðu Sáda bera ábyrgð á árásunum en her stjórnvalda í Jemen sagði Húta, sem njóta stuðnings Írans, hafa skotið eldflaug á markaðinn.Átök brutust aftur út í Jemen milli Húta og stjórnvalda, sem njóta stuðnings sádi-araba, í júlí eftir nokkurra ára hlé. Árásir hafa síðan þá gengið á víxl.
Tugir drepnir í loftárásum á Jemen

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar