Að minnsta kosti sex drepnir í skotárás í Kraká

Sex hið minnsta voru drepnir og á annan tug særðir í skotárás í miðbæ borgarinnar Krakár í Póllandi í dag. Lögregla skaut árásarmanninn sem var svo fluttur á sjúkrahús.Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, sagði lögreglu rannsaka árásina, tilefni hennar og aðstæður. „Ég er upplýstur um stöðuna í Kraká af innanríkisráðherranum eftir þessa hörmulegu skotárás,“ sagði Tusk á samfélagsmiðlinum X. Forsætisráðherrann er á leið til Krakár vegna árásarinnar.Árásarmaðurinn keyrði inn á aðaltorg borgarinnar og byrjaði að skjóta á fólk sem var þar. Lögregla telur að hann hafi verið einn að verki.Árásin var gerð í gömlum hluta miðborgarinnar sem er vinsæll viðkomustaður bæði borgarbúa og ferðamanna.Pólski fjölmiðillinn Interia hefur eftir manni sem varð vitni að árásinni að hann hafi séð árásarmannin
Að minnsta kosti sex drepnir í skotárás í Kraká

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar