Dæmdur í 200 ára fangelsi fyrir að svelta börn til dauða

Dómstóll í Kenía dæmdi í gær Paul Mackenzie, leiðtoga sértrúarsafnaðar, í 200 ára fangelsi fyrir að myrða 190 börn og einn fullorðinn. Þau dóu úr hungri að hans skipan. Reuters greinir frá.Mackenzie var sakfelldur fyrir morðin ásamt 28 öðrum. Hann skipaði fylgjendum sínum að svelta börn sín til bana svo þau gætu mætt Jesú.Mackenzie, sem kallaði sig predikara, var leiðtogi sértrúarsafnaðar sem nefnist Alþjóðleg kirkja góðra frétta. Hann var handtekinn 2023 eftir að yfir 400 lík fundust í grunnri gröf í Shakahola-skógi nærri strönd Kenía, flest barnslík.Krufning leiddi í ljós að mörg barnanna í fjöldagröfunum höfðu dáið úr hungri en sum þeirra höfðu kafnað, verið kyrkt eða veitt höfuðhögg. Umfangsmikil rannsókn hófst og málið vakti alþjóðlega athygli.Í réttarhöldum yfir Mackenzie og öðrum sa
Dæmdur í 200 ára fangelsi fyrir að svelta börn til dauða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar