Stjórnarformaður Tækniskólans segir viðræður milli skólans og Reykjavíkurborgar um nýtt húsnæði skólans ganga vel og hann sé bjartsýnn á að samkomulagi verði siglt í höfn á næstu vikum. Þá hefur skólinn krafið Hafnafjarðarbæ um tugmilljóna bætur eftir að bænum tókst ekki að útvega skólanum lóð eins og fyrirhugað var.