Í Seljahverfi hefur um árabil verið rekið hljóðver, Gróðurhúsið, þar sem margir af fremstu tónlistarmönnum heims hafa komið og unnið að sinni tónlist, þar á meðal Björk, Sigur Rós, Damon Albarn, Brian Eno og Kanye West. Valgeir Sigurðsson, tónlistarmaður og upptökustjóri, kom hljóðverinu á laggirnar í upphafi 21. aldar og út frá starfseminni spratt tónlistarútgáfan Bedroom Community. Útgáfan fagnar 20 ára starfsafmæli um þessar mundir og verður með pop-up rými yfir Airwaves-helgina í Huldunótum, efri hæð Space Odyssey plötu- og fataverslunar á Bergstaðastræti. Pétur Eggertsson hitti Valgeir í sýningarrýminu og reifaði sögu útgáfunnar.Valgeir Sigurðsson, tónlistarmaður og upptökustjóri, kom hljóðverinu Gróðurhúsinu á laggirnar í upphafi 21. aldar. Hann reifaði sögu hljóðversins og útgáfunna