Stjórnendur Tækniskólans ræða við Reykjavíkurborg um lóð fyrir skólann, báðar í austurhluta borgarinnar. Skólinn krefst tugmilljóna frá Hafnarfjarðarbæ vegna vanefnda.Eftir að áform um að reisa nýjan Tækniskóla við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði runnu út í sandinn vegna vanefnda bæjarstjórnar sem hafði heitið skólanum lóð, hafa stjórnendur skólans leitað annarar lóðar. ÚLFARSÁRDALUR EÐA KELDNALAND Að minnsta kosti níu sveitarfélög víða um land buðu skólanum land; meðal þeirra Akureyri og Akranes, Selfoss, Reykjanesbær, Borgarfjörður og Reykjavík og stjórnendur skólans eiga nú í viðræðum við borgina.Egill Jónsson stjórnarformaður Tækniskólans segir að fyrst og fremst sé einblínt á tvo valkosti. „Þetta er hvorutveggja austanmegin í Reykjavíkurborg. Í Úlfarsárdal uppi á Höllunum, nálægt Bau