Rússlandsher gerði í nótt árásir á orkuinnviði í Úkraínu með þeim afleiðingum að rafmagnslaust varð í fimm héruðum. Herinn særði hið minnsta sex manns í höfuðborginni Kyiv. Ekkert lát er á árásum þrátt fyrir að á dagskrá séu viðræður fulltrúa Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna í Abú Dabí á þriðjudag og miðvikudag.Enn er verið að leita í rústum hjálparmiðstöðvar í þorpi í Zaporíssja-héraði þar sem Rússlandsher gerði árás á mánudag. Héraðsstjórinn tilkynnti í dag að lík 55 manna hafi fundist í rústum miðstöðvarinnar.Oleksander Haiovyi, tvítugur íbúi Kyiv, kannar ástandið á bíl sínum sem er undir mold og braki eftir árásir Rússlandshers í nótt.AP / Dan Bashakov