Hin stórefnilega leikkona Salka Gústafsdóttir hefur skotist upp á stjörnuhimininn síðustu misserin. Hún leikur þessa dagana í Nýju eldhúsi eftir máli í Þjóðleikhúsinu og skemmtir þjóðinni með hressandi innslögum í Vikunni með Gísla Marteini á föstudagskvöldum.„Ég var svo efnileg,“ segir Salka kankvís þegar hún rifjar upp að handboltinn átti hug hennar allan áður en leiklistin tók við. Salka heimsótti Meðmælasúpuna í Helgarútgáfunni á Rás 2 og svaraði því til hverju hún mælti með úr ýmsum hornum menningar, sjónvarpi, útvarpi, leikhúsi, matarmenningu, bókum og öðru?Við sögu kom meðal annars Gauragangur, Dagbók lögreglu, leiksýningin Högg, söngleikir, Sienna Spiro og einfaldur kjúklingaréttur með hrísgrjónum.Meðmælasúpan er í boði í Helgarútgáfunni á Rás 2 alla laugardaga eftir hádegi.