Áform Daða Más Kristinssonar fjármálaráðherra um að koma á „faglegri“ skipan í stjórnir ríkisfyrirtækja hafa gengið sérstaklega vel eftir. Nú, átján mánuðum eftir að fjármálaráðherra skipti út öllum stjórnarmönnum og setti sitt fólk í staðinn, hefur farsæll forstjóri til sautján ára hrökklast frá störfum ásamt fjármálastjóranum og eftir stendur stjórnin, rúin trausti í augum flestra, á berangri.