Gréta Sigríður Einarsdóttir skrifar:Það er misjafnt hvað börn fá í arfleifð. Auður og félagsleg tengsl geta vitaskuld gefið sumum verulegt forskot á aðra, samanber alþjóðlega umræðu um nepobabies eða kúltúrbörnin. Svo eru það börnin sem fá áfallasögu í vöggugjöf, kynslóðatráma sem litar ekki bara ástandið á bernskuheimilinu heldur þroska þeirra sjálfra. Við tölum öðruvísi um áföll í dag en gert var á 10. áratugnum en breytingarnar gerast hægt og tíminn er ekki mældur í vikum heldur kynslóðum.Í nýjustu skáldsögu sinni, Míkadó, fjallar Gerður Kristný um unga stelpu. Hún elst upp á heimili þar sem þarf að hafa hljótt yfir ýmsu, í fjölskyldu sem krefst þess að hún hafi sjálf hljótt og leyfi ekki sínu ljósi að skína of skært. Gerður Kristný hefur sent frá sér nokkra tugi bóka af ýmsu tagi, ljóð