KA féll úr Bestu deildinni í lok síðasta mánaðar eftir tíu tímabil í röð í efstu deild. Fyrir mót var KA spáð 7. sæti í spá okkar á Fótbolta.net. Enn eitt tímabilið byrjaði KA mótið hægt, fékk eitt stig úr fyrstu þremur leikjunum, vann svo þrjá leiki í röð, en tapaði næstu sex þar á eftir. Einungis tveir af síðustu níu leikjunum fyrir skiptingu unnust og liðið var þá í næstneðsta sæti. Níu stig úr síðustu fimm leikjunum dugðu ekki til að bjarga liðinu frá falli. Fótbolti.net ræddi við Sævar Pétursson, framkvæmdastjóra KA, um fallið.