Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist opin fyrir viðveru fleiri hermanna hér á landi frá NATO ríkjum til þess að tryggja öryggi landsins. Hún sér þó ekki fyrir sér að bandarískir hermenn hafi hér varanlega viðveru aftur.„Við erum opin fyrir því að sjá fleiri hermenn á Íslandi sem part af þessari NATO-regnhlíf sem við erum undir,“ sagði Kristrún í viðtali við fréttastofu Bloomberg í gær þar sem hún ræddi meðal annars heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í október.Hún sagði Bandaríkin og Ísland eiga í viðræðum um öryggi og varnir og að heimsókn Rubio hefði verið nýtt til að styrkja það samband. Eftir að herstöðinni á Keflavíkurflugvelli var lokað 2006 hafi þó aðrar NATO þjóðir stigið inn varðandi loftrýmisgæslu og eftirlit í kringum landið. Því telur hún ekki nauðsy