Iceguys-kvikmyndin: „Verulega góð og skemmtileg afþreying“

„Ég verð bara að segja að ég er mjög ánægður með þessa bíómynd. Ég var eiginlega grenjandi úr hlátri í Smárabíó í hádeginu á þriðjudegi. Þetta var svona aldrei vekja mig-dæmi,“ segir Ólafur Alexander, annar gagnrýnenda Miðstöðvarinnar. Hann gagnrýnir kvikmyndir og sjónvarpsþætti í þættinum ásamt Brynju Hjálmsdóttur. „Þessi mynd er fyrir alla sem taka sig ekki of alvarlega,“ bætir hann við.„Þetta er verulega góð og skemmtileg afþreying,“ segir Brynja og tekur fram að handritshöfundar og leikstjórar Iceguys hafi fundið formúlu sem gengur upp.Þú getur horft á áhugaverðar umræður um Iceguys: The Movie í spilaranum hér fyrir ofan.Miðstöðin er vikulegur þáttur um dægurmenningu á fimmtudagskvöldum kl. 20.15 á RÚV. Þátturinn er líka í spilaranum þegar þér hentar.
Iceguys-kvikmyndin: „Verulega góð og skemmtileg afþreying“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar