„Þegar það kemur að fjárfestingum á Íslandi þá er verið að okra þar. Það er versta dæmið. Þetta er svolítið eins og með gengi. Þú fattar þetta ekkert. Þú kaupir bara í einhverjum sjóði svo færðu kannski að meðaltali tveggja prósenta raunávöxtun og þú vissir ekki að þú hefðir fengið miklu meira ef þeir hefðu ekki verið að rukka svona mikið.“