Það stefnir í hnífjafnar og spennandi þingkosningar á Nýja-Sjálandi í dag. Aðeins nokkur hundruð atkvæði skilja að þingflokk forsætisráðherra og Verkamannaflokkinn þegar búið er að telja um fjórðung atkvæða.Kosningabaráttan hefur einkennst af áhyggjum vegna hækkandi framfærslukostnaðar og efnahagsástandsins. Margir eiga erfitt með að ná endum saman, verð á nauðsynjavöru helst óvenju hátt og atvinnuleysi hefur ekki mælst jafn hátt í áratug.Forsætisráðherrann Christopher Luxon vonast til þess að hægrisinnað kosningabandalag hans haldi velli með loforði sínu um enga nýja skatta. Síðustu þrjú ár hafa verið umhleypingasöm, flokkur Luxon, Þjóðarflokkurinn, reyndi tvívegis að steypa honum af stóli forsætisráðherra og efnahagur landsins er í kyrrstöðu.Fyrrverandi forsætisráðherra, Chris Hipkins, o