Lögregla stöðvaði ökumann eftir að hann ók á ljósastaur, upp á umferðareyju og á annan ljósastaur miðsvæðis í borginni. Ökumaðurinn var vistaður í fangageymslu grunaður um að hafa ekið undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Lögregla hafði í nægu að snúast í nótt og voru 78 mál bókuð, samkvæmt dagbók lögreglu. Sex gista í fangageymslum. Fjórir voru handteknir í miðbæ Reykjavíkur eftir að hafa stofnað til slagsmála. Nauðsynlegt reyndist að vista einn þeirra í fangageymslu vegna ástands. Í umdæmi lögreglustöðvar 2 sem þjónustar Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes var tilkynnt um gest með hníf á krá. Lögregla fór strax á staðinn en ekki fannst hnífur á þeim sem tilkynntur hafði verið. Tilkynnt var um innbrot í heimahús í umdæmi lögreglustöðvar 3 sem þjónustar Breiðholt og Kópavog og er það mál í ran