„Mig langaði til að gera bókina sem ég hefði viljað lesa. Af því að mér fannst ég vera að fálma í myrkrinu og vita ekkert hvað ég væri að fara út í, hvað biði mín og hvernig ég ætti að snúa mér í þessu,“ segir Elías Rúni sem hefur um árabil starfað sem teiknari og myndlýsir en hefur nú gefið út sjálfsævisögulegu myndasöguna Fyrsta skiptið.Þar segir Elías söguna af að koma út sem trans og lýsir sorginni og gleðinni sem sú umbreyting felur í sér. Hann lýsir átökum við skömm, innbyggða fordóma og nafnabreytingu. En einnig gleðinni sem því fylgir að finna sig í eigin líkama og að finna sitt samfélag. „Það var mjög ógnvænleg tilhugsun að ætla að segja mína sögu. En tilfinningin byggðist upp hægt að rólega og það var engin leið að hunsa hana.“ Rætt var við Elías Rúna í Víðsjá Elías Rúni hefur ge