Dregið verður úr framleiðslu á Cybertruck-bílum í verksmiðju Tesla í Texas um mitt næsta ár. Elon Musk, stofnandi og framkvæmdastjóri Tesla, greindi frá þessu í færslu á X í gær.Musk sagði ekki til um það hvort til standi að hætta framleiðslu á bílunum eða hvort þeir verði framleiddir annars staðar, né heldur hvað yrði um óafgreiddar pantanir. Í staðinn ætlar fyrirtækið að leggja áherslu á framleiðslu Cybercab-bíla í verksmiðju Tesla í Texas.Cybercab er sjálfkeyrandi tveggja sæta leigubíll án stýris og fótsiga sem var tekinn í notkun í Austin, höfuðborg Texas, í september. Aðdáendur Cybertruck-bílanna lýstu yfir áhyggjum sínum við tilkynningu Musk, en hann fullvissaði þá um að Cybertruck-bílarnir yrðu áfram til. SALA Á CYBERTRUCK UNDIR VÆNTINGUM Cybertruck bílarnir voru fyrst kynntir af