Bandaríkjastjórn býður greiðslur fyrir upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írana

Bandaríkjastjórn býður allt að 20 milljónir dollara í greiðslu og mögulegan flutning til annars lands fyrir upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írana.Aðgerðarstjórn Bandaríkjahers (CENTCOM) greindi frá þessu í færslu á X í nótt. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna greiðir fyrir upplýsingarnar úr sérstökum sjóði ráðuneytisins sem nefnist Verðlaun fyrir réttlæti. Óskað er eftir upplýsingum líkt og um mannvirki, búnað, starfsfólk og vísindafólk sem tengist kjarnorkuáætluninni.Í yfirlýsingu frá ráðuneytinu kemur fram að Íran fari ekki eftir reglum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) um eftirlit og því skortir utanríkisráðuneytið vitneskju um framleiðslu Írana, birgðastöðu og lykiltæki eins og skilvindur sem notaðar eru til að auðga úran. SEGIR VIÐRÆÐUR Í GANGI EN ENN EIGI EFTIR AÐ GERA ÁRÁSIR
Bandaríkjastjórn býður greiðslur fyrir upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írana

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar