Fyrrum forseti settur í stofufangelsi

Yfirvöld í Paragvæ settu fyrrum forseta landsins, Santiago Pena, í stofufangelsi í gær. Saksóknarinn Silvia Margarita Gonzalez Vester sagði í viðtali við fréttamenn að hann verði í stofufangelsi á heimili sínu.Til stendur að yfirheyra Pena í dag vegna ásakana um trúnaðarbrot, áhrifakaup og fjárdrátt.Varaforsetinn Pedro Alliana hefur verið skipaður forseti eftir að Pena sagði af sér á fimmtudag vegna falls stærsta banka landsins. Pena átti hlut í bankanum.Um helmingur íbúa landsins, þrjár milljónir manna, er í viðskiptum við bankann og yfirtakan varð til þess að fólk missti aðgang að inneignum sínum í bankanum.Alliana gegnir embætti forseta til 2028. Hann heitir því að bregðast ekki innistæðueigendum bankans.
Fyrrum forseti settur í stofufangelsi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar