Skipulögð brotastarfsemi þar sem erlend glæpagengi koma mjög við sögu er fyrirferðarmikil í löggæsluáætlun til næstu fimm ára, sem dómsmálaráðuneytið birti í liðinni viku. Stefán Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum er sérfróður um þennan málaflokk og höfundur þess hluta áætlunarinnar sem að honum lýtur. Hann segir umfang þessarar brotastarfsemi mikla, hér sem annars staðar. Í skýrslum og gögnum Europol og Evrópusambandsins komi fram að skipulögð glæpastarfsemi sé einhver mesta ógn sem steðji að vestrænum samfélögum og þar sé Ísland engin undantekning. Samkvæmt Ríkislögreglustjóra eru minnst 20 skipulagðir brotahópar hér á landi og skammt er síðan fréttir bárust af því að Ísland sé eitt sextán Evrópuríkja þar sem stærstu glæpasamtök Brasilíu, PCC, hafi ve