Kennararáð Cornell-háskóla í Bandaríkjunum hefur lýst yfir vantrausti á yfirstjórn skólans vegna viðbragða hennar við kynferðisofbeldi innan háskólans.Tillagan um að lýsa yfir vantrausti á skólastjórnendur var samþykkt í dag með 75 atkvæðum gegn 50. Fimm sátu hjá og fimm voru fjarverandi. Vantrauststillagan er tilkomin vegna hópnauðgunar í skólanum fyrir tveimur árum. Skólayfirvöld hafa verið gagnrýnd fyrir hvernig þau tóku á málinu.Ung kona segir að sjö karlkyns nemendur, félagar í Chi Phi-bræðralaginu, hafi byrlað sér ketamín og nauðgað sér. Málið hefur vakið mikla athygli undanfarið eftir að konan höfðaði mál vegna þess að gerendurnir voru ekki saksóttir á sínum tíma. STJÓRN CORNELL STYÐUR FORSETA OG STJÓRNENDUR SKÓLANS The New York Times segir að vantrauststillagan sé að miklu leyti