Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað Stephen Miller starfsmannastjóra Hvíta hússins frá og með mánudeginum. Forsetinn tilkynnti um þetta í færslu á Truth Social í kvöld.Miller tekur við af Susie Wiles, starfsmannastjóra Hvíta hússins, sem sagði af sér embætti í kvöld eftir að repúblikanar töpuðu báðum deildum á Bandaríkjaþingi í nýafstöðnum kosningum.Miller var áður aðstoðarstarfsmannastjóri og er náinn aðstoðarmaður Trumps. Hann er talinn hafa mótað umdeilda stefnu Trumps í innflytjendamálum og brottvísunum.Wiles var ráðin starfsmannastjóri í nóvember 2024 þegar Trump var kjörinn forseti í annað sinn og var fyrsta konan í því embætti. Trump þakkaði henni fyrir frábært starf og hún mun áfram starfa fyrir forsetann en á öðrum vettvangi, við pólitíska starfsemi Trumps.