Nýjar ratsjárstöðvar eiga að greina skip sem gefa ekki upp staðsetningu

Landhelgisgæslan hefur sett upp ratsjárstöðvar á fjórum stöðum sem eiga að efla eftirlit á hafsvæðum nærri landi og fylgjast með skipaumferð sem gefa ekki upp staðsetningu. Ratsjárnar eiga að auka siglingaöryggi og efla eftirlit með landamærum og fjarskiptaköplum.„Við erum að reyna að sjá þessi skip sem eru að reyna að koma til landsins óséð,“ segir Auðunn Friðrik Kristinsson, framkvæmdastjóri hjá Landhelgisgæslunni.Hann segir slíka skipaumferð ekki algenga en það gerist samt nokkrum sinnum á ári. Á veturna er sjaldgæft að skip séu á ferðinni sem sendi ekki staðsetningarmerki. Á sumrin séu hins vegar oftar á ferðinni lítil skemmtiferðaskip eða skútur sem láti ekki vita af sér.„En svo eru skip að koma sem eru rannsóknarskip erlendra ríkja sem eru ekki með kveikt á búnaðinum,“ segir Auðunn.
Nýjar ratsjárstöðvar eiga að greina skip sem gefa ekki upp staðsetningu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar