Formaður Dýraverndarsambands Íslands segir myndefnið úr stíum Stjörnugríss sláandi en það sýni fram á að víða sé pottur brotinn í svínahaldi hérlendis og komi sambandinu ekki á óvart. Í svínahaldi sé lögð áhersla á að auka framleiðslu sem komi niður á dýrunum. Formaður Grænkerasambands Íslands hvetur fólk til að velja annað en svínakjöt í hátíðarmatinn.