Formaður Dýraverndarsambandsins segir svínabúum bera að huga frekar að velferð dýra en hámarksframleiðslu

Linda Karen Gunnarsdóttir formaður Dýraverndarsambands Íslands segir aðbúnað dýra á búi Stjörnugríss ekki standast núgildandi reglugerð um velferð svína. Svínabændur hafi fengið framlengdan frest til ársins 2028 til að aðlaga aðbúnaðinn að kröfum reglugerðarinnar.Linda Karen segir Dýraverndarsambandið telja nauðsynlegt að sú áherslubreyting verði að svínabú hugi að velferð dýra. „Við sjáum það að áherslan er að hámarka framleiðsluna á meðan það er minni áhersla á dýravelferð. Það er gríðarlega mikilvægt að breyta þeirri áherslu,“ segir Linda. Dýraverndarsambandið hafi áhyggjur af starfseminni.Hún segir jafnframt brýnt að afnema þá undanþágu sem svínabændur hafi til að halaklippa grísi. Þannig sé verið að laga dýrin að starfseminni. „Samkvæmt nútímakröfum um dýravelferð á að laga starfsemin
Formaður Dýraverndarsambandsins segir svínabúum bera að huga frekar að velferð dýra en hámarksframleiðslu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar