Dagur gegn einelti var haldinn hátíðlegur í Hlíðaskóla. Halla Tómasdóttir forseti Íslands veitti Fjölbrautaskóla Suðurlands hvatningarverðlaun fyrir forvarnir gegni einelti, Kærleikslag var samið í tilefni dagsins og nemendur í Hlíðaskóla lögðu söngkonunni Gísellu Hannesdóttur lið við flutninginn.Frosti Þorvaldsson nemandi í 9. bekk í Hlíðaskóla flutti ávarp og segir að það skipti miklu máli þegar taka þarf á erfiðum málum, eins og einelti, að fullorðnir sýni börnum og unglingum virðingu. KENNA MANNI OG ÆSA SIG EKKI „Skamma ekki. Og tala við mann í rólegheitum. Kenna manni og æsa sig ekki. Þá hlusta unglingar miklu meira og taka það miklu meira til sín. Í staðinn fyrir þegar þeir eru skammaðir.“Finnst unglingum þeir stundum of mikið skammaðir? „Já, en þeir eiga það líka kannski stundum