Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, sagði í tilkynningu frá skólanum í gær að nauðsynlegt væri að leiðrétta fjármögnun skólans en núverandi áætlanir gera ráð fyrir tuttugu og fimm prósenta skerðingu. Háskólarnir fá úthlutað fé í gegnum reiknilíkan sem er breytilegt milli ára.Logi Már Einarsson er menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra. Hann segir virkt samtal í gangi við rektora allra háskóla landsins:„Við erum líka meðvituð um það að þetta reiknilíkan er eitthvað sem er ekki hoggið í stein og ekki náttúrulögmál heldur er mannanna verk. Við heyrum sjónarmið rektoranna og munum reyna að bæta það. Markmið okkar er að þessi skólar séu sem sterkastir allir.“Hann er bjartsýnn á að góð niðurstaða fáist í málið, áður en fjárlög verði afgreidd.„Já, eins og ég segi