Fyrra innbrot Einars Loga Péturssonar í gyltubú Stjörnugríss, 11. maí í vor, olli dýrunum hræðslu, óbætanlegum skaða og dauða og er dýraníð.Innbrotið segir Geir G. Geirsson forstjóri Stjörnugríss í yfirlýsingu hafa leitt af sér það alvarlega ástand dýranna sem sjá má í myndskeiði sem Einar Logi birti á Instagram í morgun og samræmast ekki yfirlýstu markmiði hans um dýravelferð.Einar braust að sögn aftur inn í búið 2. september. Veita hafi þurft dýrunum aukna umönnun í kjölfar fyrra innbrotsins. Einar Logi birti myndskeið á Instagram í morgun þar sem sjá má dauða og veikburða grísi, dauð fóstur og dýr með áverka sem hann sagði lýsa bágum aðstæðum svína í búi Stjörnugríss.Geir segir að myndir Einars gefi mjög villandi mynd af starfseminni og hafnar þeirri mynd sem dregin sé upp með birtingu