Fjölskyldumeðlimur brotaþola í málinu gegn Írisi Helgu Jónatansdóttur sagði fölsuð gögn hafa verið í greinargerð sem hún lagði fyrir dóm. Aðalmeðferð í málinu hélt áfram í héraðsdómi Reykjaness í morgun en þinghald var að hluta til lokað.Íris Helga er ákærð er fyrir umfangsmikið umsáturseinelti, skjalafals, rangar sakargiftir og ærumeiðandi aðdróttanir á árunum 2022 til 2025.Hún er sögð hafa stundað umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu hennar. Hún er einnig sökuð um barnaverndarlagabrot þar sem brot hennar eru einnig sögð hafa beinst að börnum tveggja mannanna.Heimildin greindi frá því í morgun að tveir brotaþolar í málinu hafi fengið nálgunarbann á hendur henni sem gildir í 12 mánuði. Nálgunarbannið kom eftir atvik þar sem hún sat fyrir brotaþola