Lækkun heimsmarkaðsverðs á olíu hefur ekki skilað sér í vasa íslenskra neytenda, segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda.Heimsmarkaðsverð hefur lækkað mikið frá því að niðurstöður þingkosninga í Bandaríkjunum lágu fyrir á miðvikudag. Hráolía hefur ekki verið ódýrari í tvo mánuði.Þrátt fyrir þetta og þrátt fyrir að gengi íslensku krónunnar sé sterkt, hefur lækkunin ekki skilað sér í vasa neytenda, segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda.1. september var virðisaukaskattur á eldsneyti hækkaður aftur úr 11% í 24%.„Síðan þá hefur bensín að meðaltali hækkað um um það bil 57 krónur á lítra og dísilolía hefur hækkað enn meira,“ segir Runólfur. BÍÐUR EFTIR SKILABOÐUM FRÁ SAMKEPPNISEFTIRLITI Hann segir svipaða þróun hafa orðið