Elon Musk, auðugasti maður heims og forstjóri Tesla, svo eitthvað sé nefnt, tilkynnti í morgun að dregið yrði úr framleiðslu Cybertruck-bílsins í verksmiðju Tesla í Texas. Sala hins umdeilda bíls hefur ekki farið eftir vonum forsvarsmanna Tesla og stendur til að auka framleiðslu á hinum sjálfkeyrandi Cybercab í staðinn.