Hljómsveitin Hemúllinn gaf á dögunum út plötuna Guð blessi Ísland og eins og pönksveit sæmir er sungið um ýmis umdeild málefni. Þar má nefna vanhæfa ríkisstjórn, kapítalisma og BMI-stuðulinn svo fátt eitt sé nefnt. Eitt lag stingur þó í stúf og hefur einungis jákvæð skilaboð, lagið Bogi Ágústsson.Lagið var frumflutt í Morgunverkunum á Rás 2 í vikunni og var kallaður til sérstakur tónlistarrýnir til að bregðast við laginu í beinni. Það var enginn annar en Bogi Ágústsson.„Þetta er kannski ekki sú tegund tónlistar sem ég hlusta mest á en mér finnst lagið grípandi, það er skemmtilegt en ég vil ekki leggja mat á textann,“ segir Bogi Ágústsson en afar fallega er þar sungið um Boga.Heyra má tónlistarrýni Boga í Morgunverkunum á Rás 2 í heild sinni hér.