MAST rannsakar það sem fram kemur í myndbandinu frá innbrotinu

Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir segir mikilvægt að Matvælastofnun berist ábendingar ef aðbúnaður eða umhirða dýra er talin brjóta á velferð þeirra.„Við rannsökum allar ábendingar. Þær eru allar teknar alvarlega og þeim strax fylgt eftir með rannsókn máls og kröfum til umráðamanns ef ábendingin reynist á rökum reist,“ sagði Þóra í hádegisfréttum útvarps.Þar brást hún við myndbandi sem Einar Logi Pétursson birti af innbrotinu inn í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi á Instagram. MAST segir í tilkynningu að rannsaka þurfi nánar það sem kemur fram í því.Í myndskeiðinu sjást dýr með sár, dauðir grislingar og gylta að gjóta.Þóra segir að það geti komið fyrir í öllu dýrahaldi að dýr fái sár, líkt og sjáist í myndbandinu.„En ef það gerist er það ótvíræð krafa yfirvalda að umráðamaðurinn bre
MAST rannsakar það sem fram kemur í myndbandinu frá innbrotinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar