Þriggja bíla árekstur á Hlíðarbraut

Þriggja bíla árekstur varð á Hlíðarbraut við Teigarsíðu á Akureyri um klukkan 12:30 í dag. Þetta staðfestir Jóhann Olsen varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.Hann segir að einhver meiðsli hafi orðið á fólki. Að minnsta kosti einn var fluttur á sjúkrahús. Bílarnir voru fluttir af vettvangi með kranabíl og Jóhann telur þá nokkuð tjónaða.Hlíðarbraut er lokuð á meðan lögregla er að störfum.
Þriggja bíla árekstur á Hlíðarbraut

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar