Jökull Elísabetarson var í dag kynntur sem nýr þjálfari Breiðabliks. Valur Gunnarsson, sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu deildinni, segir nokkuð ljóst að gott orðspor Jökuls í Kópavoginum færi honum starfið því illa gekk hjá Stjörnunni. „Blikastarfið er eitt stærsta starf sem þú færð á Íslandi og ef við skoðum árangur hans með Stjörnunni, sérstaklega á síðasta tímabili þar sem hann er látinn fara, og hvernig þetta var á niðurleið þá getur maður alveg sett spurningamerki við að hann fái strax sitt stærsta starf á Íslandi eftir það," segir Valur.