Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir segir mikilvægt að Matvælastofnun berist ábendingar ef aðbúnaður eða umhirða dýra er talin brjóta á velferð þeirra.„Við rannsökum allar ábendingar. Þær eru allar teknar alvarlega og þeim strax fylgt eftir með rannsókn máls og kröfum til umráðamanns ef ábendingin reynist á rökum reist,“ sagði Þóra í hádegisfréttum útvarps.Þar brást hún við myndbandi sem Einar Logi Pétursson birti af innbrotinu inn í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi á Instagram.Í myndskeiðinu sjást dýr með sár, dauðir grislingar og gylta að gjóta.Þóra segir að það geti komið fyrir í öllu dýrahaldi að dýr fái sár, líkt og sjáist í myndbandinu.„En ef það gerist er það ótvíræð krafa yfirvalda að umráðamaðurinn bregðist strax við með viðeigandi meðhöndlun og meðferð.“Hún segir fylgst með