Srdjan Tufegdzic er fyrsti valkostur KA þegar kemur að ráðningu á þjálfara karlaliðs félagsins. Þetta segir Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, í samtali við Fótbolta.net í dag. Túfa, eins og hann er alltaf kallaður, þekkir vel til hjá KA, er fyrrum leikmaður liðsins og kom KA upp úr næstefstu deild 2016. Túfa er búsettur í Svíþjóð ásamt fjölskyldu sinni en sagði í viðtali við Fótbolta.net í síðasta mánuði að hann myndi klárlega íhuga það ef hann fengi tilboð frá Íslandi um þjálfarastarf. Fótbolti.net sagði svo frá því fyrir viku síðan að KA hefði sett sig í samband við Túfa.