Drög að sameiginlegri yfirlýsingu Breta og Evrópusambandsins hafa gengið fram og til baka að undanförnu, og fastafulltrúar aðildarríkjanna hér í Brussel ræddu þetta síðast í gær.Samkvæmt þessum drögum, sem fréttastofa hefur séð, er allt útlit fyrir að samkomulag hafi náðst um þrjá mikilvæga þætti í samskiptunum yfir Ermarsund: um viðskipti með matvöru, um nemendaskipti og samræmingu á gjaldtöku fyrir losunarheimildir (ETS-kerfið).Andy Burnham forsætisráðherra kemur hingað til Brussel 20. nóvember, til fundar við Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Antonio Costa, forseta leiðtogaráðs ESB, þar sem búist er við að þessir áfangar verði formlega staðfestir.Undirbúningur að þessum leiðtogafundi hefur staðið í talsverðan tíma og reyndar var búið að setja hann á d