„Þetta kemur ekki á óvart. Samtök ferðaþjónustunnar skiluðu ítarlegri umsögn um málið í samráðsgátt stjórnvalda þar sem bent var á sambærilega niðurstöðu, að það væru líkur á að forsendurnar í greinargerðinni um þetta mál stæðust ekki,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, í samtali við Morgunblaðið.