Birti myndband af innbroti hjá Stjörnugrís

Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður, sem braust inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi, hefur birt myndband af innbrotinu á Instagram. Þar lýsir hann því sem hann telur slæman aðbúnað svína í búinu og bendir meðal annars á að nýgotnir grísir liggi víða dauðir og mörg svín séu með legusár.„Ég er staddur hérna á svínabúi á Kjalarnesi þar sem í kringum mig eru hundruð svína sem eru að þjást, allt lífið sitt, inni í þröngum búrum. Þau fá aldrei að fara út, þau fá aldrei að sjá sólina, þau fá aldrei að finna fyrir grasi, það eina sem þau þekkja er bara þjáning,“ segir Einar Logi í myndbandinu sem sjá má hér fyrir neðan.Við vörum við myndefninu.Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem braust inn í bú Stjörnugríss á Kjalarnesi, hefur birt myndband af innbrotinu á Instagram. Þar lýsir hann þ
Birti myndband af innbroti hjá Stjörnugrís

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar