Mikið tjón varð þegar eldur kom upp í nytjamarkaði ABC barnahjálpar á Smiðjuvegi í Kópavogi í nótt. Framkvæmdastjóri samtakanna, segir starfsfólk miður sín enda hafi mikil vinna verið lögð í markaðinn sem er ein helsta fjáröflunarleið samtakanna. Stefnt sé að að opna aftur sem allra fyrst.