Samkvæmt heimildum Fótbolta.net stefnir í að Aron Baldvin Þórðarson hætti sem aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara Víkings og taki við Lengjudeildarliði Fylkis. Aron Baldvin er 31 árs og er uppalinn Fylkismaður. Hann var sterklega orðaður við ÍBV fyrir ári síðan. Árbæingar eiga eftir að ná samkomulagi við Víking um að fá hann.