Byggðarráð Borgarbyggðar leggst alfarið gegn því að fyrirhugað vindorkuver við Alviðru á Grjóthálsi verði sett í biðflokk rammaáætlunar. Þess í stað vill sveitarfélagið að virkjunarkosturinn verði settur í verndarflokk og þannig komið í veg fyrir fyrirhugaða orkunýtingu á svæðinu.