„Forgangsatriðið er að koma markaðnum aftur í gang,“ segir Hrönn Svansdóttir framkvæmdastjóri ABC barnahjálpar. „Við brettum upp ermar og opnum sem fyrst en það skýrist náttúrulega bara í dag og um helgina hvað við náum að vera snögg að því.“Eldur kviknaði í Nytjamarkaði ABC í Kópavogi í nótt. Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um eldinn um klukkan tvö í nótt og allar stöðvar voru sendar á staðinn. VÖRUMÓTTAKAN VERST FARIN Hrönn vaknaði við símtal frá Securitas klukkan tvær mínútur yfir tvö. Þegar hún kom á vettvang hafði slökkviliði tekist að slökkva eldinn.„Það var mikill reykur og slökkviliðið bara við sín störf. Það er náttúrulega mikið sót. Það er aðallega vörumóttakan sem er illa brunnin. En svo eru reykskemmdir og sót og vatn eflaust fyrir innan,“ segir hún.Starfsf