Um þar síðustu helgi átti FH að taka á móti Þór á Kaplakrikavelli í lokaumferð Bestu deildarinnar. Það var ekki hægt þar sem völlurinn var frosinn og er hann ekki upphitaður. Því var spilað á heimavelli Þróttar í Laugardal. Fótbolti.net ræddi við Davíð Þór Viðarsson, yfirmann fótboltamála hjá FH, um framtíð vallarins. FH-ingurinn Jóhann Ægir Arnarsson gerði rannsókn á úrslitum úr leikjum í efstu tveimur deildum karla á árunum 2022-2025 í rannsókninni kom í ljós að hæsta sigurprósentan var hjá liðum sem spila heimaleiki sína á gervigrasi þegar gestalið sem spila sína heimaleiki á náttúrulegu grasi komu í heimsókn.