Fimm erlendir karlmenn hafa verið boðaðir til fyrirtöku mála hjá sýslumönnum vegna ágreinings um meðlagsgreiðslur, fjárframlög til menntunar og utanlandsferðir barna. Tilkynningar þess efnis hafa verið birtar í Lögbirtingablaðinu undanfarna daga. Mennirnir eru frá Litháen, Úkraínu, Póllandi og Mongólíu. Tveir þeirra eru úkraínskir ríkisborgarar. Í tveimur málanna er þess krafist að feður samþykki utanlandsferðir barna sinna yfir jólahátíðina. Annar maðurinn...