Veðurstofan hefur komið fyrir fjórum tímabundnum jarðskjálftamálum við Grjótárvatn á Mýrum. Markmið þess er að kanna hvort þörf sé á að þétta mælanetið sem er þegar til staðar á svæðinu.Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Veðurstofunnar.Mælarnir voru settir upp í lok október og verða teknir niður fljótlega. Þrír senda gögn í rauntíma til Veðurstofunnar en sá fjórði er ofan við Grjótárvatn, beint yfir svæðinu þar sem skjálftavirknin mælist.„Með því að bera gögn úr tímabundnu mælunum saman við gögn úr fasta mælanetinu má meta hvort þörf sé á að þétta netið á svæðinu,“ segir í fréttatilkynningu Veðurstofunnar.Í fyrra var fjallað um það að aukin skjálftavirkni hefði mælst innan Ljósufjallakerfisins, sem Grjótárvatn er í, frá árinu 2021. Mælingar benda til þess að skjálftana megi rekja til kvi